Á þessari heimasíðu er reynt að varpa ljósi á hvað það felur í sér að vera Musterisriddari.
Við leggjum mikla áherslu á mikilvægi fjölskyldunnar, fjölskyldan og heimilið eru hornsteinar samfélagsins.
Viðburðir utan hefðbundins reglustarfs eru mikilvægir, þeir auka persónuleg kynni bræðranna og fjölskyldna þeirra, auka samkennd og efla félagsandann.
Regla musterisriddara byggir á kristinni trú. Að öðru leyti leggur Reglan engar hömlur á trúarskoðanir félaganna né stjórnmálaviðhorf. Reglan leggur áherslu á hugsjónastarf og vilja til að vinna að siðferðilega háleitum markmiðum.
Víkurhvarf 1, 203 Kópavogi
Á Íslandi eru tvær félagsdeildir
- Riddaramusterið Hekla í Reykjavík
- Riddaramusterið Askja á Akureyri
Jón Árnason var einn af stofnendum reglu musterisriddara á Íslandi og fyrsti meistari reglunnar. Sjá nánar.